|
|
08.11.2006 22:18:43 / emma
Jæja! mér datt í hug að auglýsa hér Fjölskyldusýningu Íslenska
dansflokksins. Þetta er sem sagt mjög áhorfendavæn og
skemmtileg sýning fyrir fólk á öllum aldri, ekkert artídrama.
Það verða aðeins 3 sýningar næstu þrjá laugardaga.
11, 18 og 25. nóv og eru allar sýningarnar klukkan 14:00 á
stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu. Það er frítt fyrir krakka
og 13 til 16 ára borga hálft verð, þannig að ef ykkur langar
að koma þá endilega komið með litlu systkinin, frænkur og
frændur.
Það verða sýnd 3 brot úr mismunandi verkum.
Screensaver, Lúna og Súrt og sætt.
Verið svolítið menningarleg og takið fjölskylduna með í
leikhúsið!!!! 
http://www.id.is/uploads/files/F3892C07388F.jpg

»
29.06.2006 09:09:11 / emma
»
26.06.2006 14:46:22 / emma
Jæja ég held að það sé kominn tími á nýja færslu og ég veit að
rannsý er ekkert að fara að gera í því þar sem hún er ekki
internettengd þessa dagana.

Ég var sem sagt að festa kaup á miða til Spánar rétt í þessu
!!!! og ég er ýkt ánægð með það að vera að fara flýja land þessa
dagana. Ég flýg sem sagt til Barcelona 1. júlí og þar hitti ég
Freyju sem býr þar núna og ég er svo heppin að fá bara að gista hjá
henni og vinkonum hennar þannig að það verður örugglega fjör á
okkur. Síðan eftir einn dag í Baracelona þá hitti ég Tönju og Sögu
sem koma þangað frá Hollandi og við ferðumst saman til Tortosa sem
er einhver bær þarna á Spáni. Þegar við erum komnar þangað þá
hittum við Hjördísi og Steve sem koma frá Þýskalandi og einnig hana
Þórey sem kemur frá Danmörku.. Þannig að þetta verða fagnaðarfundir
þarna á Spáni. En það sem við erum öll að fara að gera þarna í
Tortosa er sem sagt að sækja dansnámskeið. Þetta verður örugglega
geggja námseið maður, ég er að fara að læra breakdans, yoga, modern
og alls konar svoleiðis stuff .... en það verður örugglega
eitthvað skrópað til að skjótast á ströndina til að worka tanið
aðeins eins og Trausti myndi orða það 
Annars á ég bara að vera að læra undir próf núna þannig að best
að maður fari að hætta. Ég er að fara í lokapróf á morgunn í
sumarskólanum og ég eyddi öllum gærdeginum í að gera lokaverkefnið,
svaka fjör. En það var nú samt bara ágætt að hvíla hugann á mínum
hugsunum og gleyma sér í tölum og dúlla sér í exel með góða tónlist
á. Ninna þú hafðir bara rétt fyrir þér, það er ógeðslega gaman að
dúlla sér í exel hehehe við erum svo miklir nördar. 
Annars vil ég bara þakka Ernu fyrir geðveikt partý á
föstudeginum. Það var ekkert smá gaman. Blómakransarnir og
gasgrímurnar voru að gera góða hluti. Við verðum síðan bara í
bandi útaf jakkaskiptum Erna kjútí.
Herru ég ætla að stela myndunum hans Atla úr partýinu hjá Ernu því
þær voru svo skemmtilegar.
http://pg.photos.yahoo.com/ph/atlividar83/album?.dir=493c&.src=ph
lærilínan kveður að sinni
»
13.06.2006 23:10:30 / emma

Ég veit ekki alveg hvað ég var að hugsa þegar ég ákvað að fara í
hina árlegu göngu Borgarleikhússins. Ég vissi allavegana ekki hvað
ég var að fara út í. Hélt að þetta yrði max klukkutíma ganga í sól
og blíðu en neeeiii!!! Þetta var 3-4 tíma fjallganga á Reykjanesinu
í kikkuðu veðri, helli dembu og brjáluðu roki. Eftir klukkutíma
göngu var ég orðin gegnblaut alls staðar, ég er að tala um
nærbuxurnar og allt. Ég var við það að gefast upp, alveg skjálfandi
úr kulda þegar ég spurði leiðsögumanninn hvað það væri nú langt
eftir, ég hélt að þetta væri að verða búið. Þá sagði hann að það
væru svona 2-3 tímar eftir!!!!!!!!!!!! Mig langaði til að gráta og
hringja á landgæsluna og fá þyrlu til að sækja mig. HVAÐ VAR ÉG AÐ
PÆLA, ég hefði getað verið heima fyrir framan sjónvarpið, enda
komin í sumarfrí en í staðinn var ég að verða úti uppi á einhverju
fjalli af fúsum og frjálsum vilja!!!!!! 
En þetta var bara fyndið.... Í pásunum staupuðum við opalstaupi
til að halda á okkur hita, það var eina ráðið. Ég er að tala um að
ég gat ekki rétt úr fingrunum því ég var búin að vera með kreppta
hnefa alla ferðina, þannig að ég var þvílíkt dofin og gat því ekki
notað hendurnar þegar við þurftum að klifra upp mjög bratt gil.
Þegar við sáum rútuna koma á móti okkur, þá öskruðum við af gleði
því þá vissum við að við ættum eftir að lifa lengur. Síðan skelltum
við okkur úr blautu fötunum þegar við komum upp í rútuna og
skáluðum í einum volgum bjór í tilefni að því að við værum
útskrifuð úr herskólanum.
Þvílík vitleysa, síðan var sundferð þar sem við lágum lengi í
heitapottinum til að reyna að ná hitanum aftur upp og síðan var
grillveisla fyrir okkur.
Hér eru myndir frá göngunni og e-h aðrar http://public.fotki.com/fjallganga/upp__lf_og_daua/
Selút
Lieutenant Emma Thomson
»
10.06.2006 19:33:53 / emma
Jenni litli !!!

Dansleikhúsdanskeppnin bara búin og gékk svona rosalega vel.
Tommi og Jenni lentu í 2. sæti og var valið vinsælasta verkið af
áhorfendum. Gaman gaman. Mér tekst samt alltaf að klúðra einhverju.
Þegar ég og Peter stóðum á miðju sviðinu og verkið í þann mund að
byrja, þá þarf ég allt í einu að teygja svolítið á mér, hoppa í
sundur með lappirnar og ríf buxurnar í klofinu og síðan fór tjaldið
og ljósin upp og við byrjuðum að dansa í hláturskasti. En þetta
gerði þetta bara skemmtilegra að vera svona með rassinn út í loftið
hehehe
Síðan var þvílíkt skemmtileg óvissuferð með dansflokknum á
föstudeginum og var sú ferð þaul skipulögð af Hjördísi og Steve og
stóðu þau sig með stakri prýði. Byrjað var í ratleik í Borgó,
(keppnisskapið var alveg að fara með fólk og var mikið um svita og
tár , Síðan furðulegir leikir í grasagarðinum, Spa í laugum í
þessari furðulegu veröld. Gufa, ísbað, íssturta, heiti potturinn,
barinn og sofnað í þægindastólunum fyrir framan arineldinn. Síðan
grillveisla hos Hjördísi og brjálað partý langt fram á nótt. Síðan
var bærinn tekinn á þetta til klukkan svona 5, hálf 6. Frábær
sólahringur!!!!

myndir: http://public.fotki.com/dansleikhus/dansleikhsk/
»
07.06.2006 16:07:26 / emma
Jæja þá heldur fjörið áfram!!! Árlega dansleikhússamkeppnin
verður haldin á morgunn. fim. 8. júní á stóra sviðinu í
Borgaleikhúsinu kl. 20:00. Þetta verður heljarinar fjör, 9 verk að
keppa til úrslita og síðan verður stórdansleikur eftir keppnina.
Partý! Partý ( og mín verður meira að segja í 4 verkum þetta
kvöldið, þannig að það verður nóg að gera)
http://public.fotki.com/klemman/ammaeli/vala.html
Allir dans- og leikhús-unnendur eiga ekki að láta þetta fram hjá
sér fara.

»
04.06.2006 13:48:46 / emma

Afmælisdagurinn kominn í höfn Þetta er bara búið að vera
heljarinnar fjör að eiga afmæli. Fyrsta lagi frábært partý, vel
heppnað í alla staði og hún unnsa á stórt hrós skilið fyrir
að vera partý planari nr.1 hehehe

Síðan gaf bróðir minn góði mér miða á tónleikana í gær og það
var ekkert smá mikið fjör þar. Dans, slagsmál, ókeypis bjór!!,
bjórsfrussuslagsmál , ég tók Andra frænda í gegn þar með smá
hjálp. Síðan var það bærinn og þar hittum við frænkurnar okkar á
rassgatinu eftri mikla gæsun 


Supergrass voru ekkert smá góðir maður....Það varð bara allt
vitlaust
Myndir: http://public.fotki.com/klemman/ammaeli/
Myndir hennar unnsu:
http://web.mac.com/gunnihans/iWeb/7EB428A8-C6F1-4FCC-B204-7AF9B40B255F/4365BBA3-5AA0-43F7-ADB9-0D936FFCCAD5.html
Takk bara kærlega fyrir mig..... 
ammælisbarnið 
»
03.06.2006 15:21:07 / Ransý
Til hamingju með afmælið elsku emma mín!!!!!!!!!
Í dag er merkisdagur, 3.júní 2006 og Emilía Benedikta á afmæli í
dag 
Í gær var haldið þrusu partý í brekkuselinu og takk kærlega
fyrir mig sæta mín!!! Ég skemmti mér ekkert smá vel allir í
sumarfíling og sumarþemað var alveg að gera sig.....ég held samt að
ég get alveg sagt að afmælisbarnið var lang flottust í flottasta
kjól sem sögur fara af!!!! þvílíkar kræsingar í boði
uuuummmm get ekki hætt að hugsa um frönsku sjúkkulaðitertuna Svo
var haldið í bæinn eftirá og dansað fram á rauða nótt 
hlakka til að sjá myndirnar dúllan mín
hafðu það yndislegt í dag elsku emma mín sæta vinkona mín :*
koss og knús í kleinu frá mér
þín Rannveig
»
31.05.2006 23:54:18 / Ransý
I wanna dance with some body, I wanna feel some heat in your
party emilía 
http://www.kvikmynd.is/indexdetail.asp?id=2200
þessi er næstum því jafn góður að dansa og ég!!! 
stelpur æfið dansporin fyrir helgina....hlakka til að dansa með
ykkur.....verið búnar að læra sporin hahahahah
sommertime kveðja
Rannsla 
»
30.05.2006 23:46:50 / emma
Já, ég held að ég sé bara búin á því núna. Var á
fullu í vinnunni til tíu mín í 5. Frekar erfiður
vinnudagur, var á fullu að berja Peter.... úfff það tekur á,
ég meina það og síðan var ég mætt í
sumarskólann kl. 17:00 og var þar til 22:00 !!!!! jeb
þannig að það var bara sjóðandi heit sturta þegar ég koma heim og
fullur pasta og salatdiskur og nú er ég bara að fara loka augunum
sko, þýðir ekkert annað.
En hér eru rosalega skemmtilegar myndir úr surprise afmælinu sem
Unnur skipulagði fyrir hann Gunna sinn síðasta föstudag.
Þetta var ekkert smá vel heppnað í alla staði. Skraut út um allt,
Hvítvín, bolla, súkkulaði kökur, stjörnuljós, skemmtiatriði, dans,
hlátur, grátur og gjafir. Unnur þú ert snillingur að halda svona
veislur. Þú hjálpar mér bara að plana partýið mitt næstu
helgi!!!
http://web.mac.com/gunnihans/iWeb/7EB428A8-C6F1-4FCC-B204-7AF9B40B255F/3FD4DE2D-741F-4D0A-82DC-9230A5FC1C5F.html
»
26.05.2006 00:22:31 / emma
Efnilegir feður hér á ferð heheheh Þessi
mynd er frá síðasta laugardag þar sem gimmarnir og makar fóru út á
borða saman og brunuðu síðan upp á skaga í stúdentsveisluna hennar
Önnu. Því miður varð myndavélin mín batteríslaus alltof
snemma. En það var ekkert smá stuð á skaganum og ég þakka Önnu
fyrir gott boð
http://pg.photos.yahoo.com/ph/emmaogrannsy/album?.dir=/aab7re2&.src=ph
http://asdis.hjalms.net/gallery/v/djamm/annastudent/
hér eru myndirnar hennar Ásdísar Hjálms.... s.s frá
stúdentsveislunni 
Beggi fór til Bulgaríu síðustu nótt í útskriftarferð og verður í
burtu frá mér í 2 vikur. En ég er bara að venjast
þessu. Við höfum svo oft verið í burtu frá hvort öðru.
Maður hefur bara meiri tíma fyrir sjálfan sig og ég ætla bara
gera eitthvað skemmtilegt næstu tvær vikur. Ég fór t.d. á mjög
skemmtilegan fótboltaleik í dag. Víkingur-Breiðablik og auðvitað
rústuðu Víkingarnir þessu Ég var reyndar farin
að halda að þeir gætu ekkert eftir síðasta leik sem ég sá en
þeir sönnuðu í dag að það er eitthvað varið í þá. Síðan í
háfleik sá ég Hrein Inga (bróðir hennar Hjördísar) leika sér í
fótbolta og vá strákurinn er ekkert smá efnilegur, hlakka til að
sjá hann spila í úrvalsdeildinni. Áhuginn sem drengurinn
hefur, þvílík snilld.
Ég er með þetta lag sem Ágústa syngur á repeat og er
ekkert að fá leið af því.
ungfrú ANDVAKA kveður að sinni 
»
23.05.2006 23:15:55 / emma

Pælið í því að standa á sviði eftir að hafa sungið og staðið sig
með príði og heyra síðan í fullt fullt af fólki sem púar síðan á
sig..... áts !!!!
Vá !!!! Annað hvort hatar fólk hana Silvíu okkar eða elskar
hana.... Ótrúlega gaman að lesa commentin á þessari síðu
hérna fyrir neðan og sjá hvernig fólk víðsvegar um heiminn tók
henni.
http://www.b2.is/?sida=tengill&id=167867
Sumir eru að fíla hana í botn! sem er frábært og gaman að fólk
skuli líka vera að horfa á þetta hérna....... ekkert smá flott lag
með henni Ágústu .... kíkið á þetta!!!
http://media.gagna.net/ruv/op/13.wmv
annars ætlaði ég að setja inn skemmtilegar myndir frá
laugardeginum en... myndirnar eru eitthvað að stríða mér þessa
stundina þannig að ég verð bara að bíða eftir því að þær fari að
hlýða mér...... bless í bili 
PS: vá þið verðið að kíkja á þetta ef þið eruð ekki búin að sjá
þetta..... Fyndni töframaðurinn
http://www.kvikmynd.is/indexdetail.asp?id=2214
»
15.05.2006 19:07:17 / emma
Jæja þá voru þessir sætur gimsteinar að klára prófin í dag!!!!
Til hamingju með það stúlkur!!! Í tilefni að þessu fór ég í
smárann með Rannsý og keypti mér föt Alltaf getur maður
fundið tilefni til að kaupa sér föt.
Síðan ætla ég að fara á sýninguna Við erum öll Marlene
Dietrich FOR í kvöld ásamt Unnsu punnsu, guddu buddu og Hjöllu
pjöllu í tilefni að því að það er mánudagur. Svo
verður þessi vika bara rosaleg,,,,,Hann beggi minn kemur heim á
miðvikudaginn og þá er líka meistaradeildin, síðan
Eurovision á fim. Ég og Beggi að halda upp á 2 ára
afmælið okkar á föstud. og síðan stúdentsveislan hennar Önnu pönnu
og Eurovision á laugard. Það er bara allt að fara að gerast í
þessari viku úfff
Jæja tjá í bili
Emma klemma kveður í bili 
»
10.05.2006 00:45:11 / emma
»
09.05.2006 23:33:51 / emma

Til hamingju með afmælið magga mín!!!! Man eftir mjög
skemmtilegum afmælum í Akraselinu. pulsupartý, óvissuferð í
sund, upp í Hallgrímskirkjuturn og vatnsslagur í garðinum og
svo náttla Eyjar og reykskinjarinn
Knús og kossar frá Love without borders 
Maður er bara komin á annað hvert strætóskýli borgarinnar.
Ég hafði nú bara ekki hugmynd um þetta, þessi mynd átti bara að
vera í e-h skýrslu. Síðan var ég að keyra heim úr vinnunni og
sá þessi strætóskýli, frekar óþægilegt. Maður var ekkert beðin um
leyfi einu sinni.
Annar dagur karlmannsleysis og ég er að þrauka þetta
sæmilega...
Kram í kross 
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
|